Póstlisti
Prenta

Sjómannagarðurinn á Hellissandi.

Sjómannagarðurinn á Hellissandi stendur sunnanmegin þjóðvegarins sem liggur í jaðri þorpsins, skammt vestan við bensínstöðina.

Sjómannagarðurinn var byggður af sjómannadagsráði Hellissands sem hefur haft veg og vanda af rekstri hans allt frá byggingu hans. 

Í garðinum hefur verið komið fyrir munum um ábúð og sjósókn fyrri tíma í Neshreppi.  Þar er m.a. áraskipið Bliki, Þorvaldarbúð sem er nákvæm eftirlíking þurrabúðar sem stóð á Hellissandi, og styttan Jöklarar eftir myndlistarmanninn  Ragnarsson Kjartansson sem var afhjúpuð árið 1974.

Guðmundur Einarsson kenndur við Klettsbúð á Hellissandi var fæddur þar 12. júní 1896 og búsettur í Klettsbúð lengst af. Þessa vísu orti hann þegar afhjúpaður var minnisvarði eftir Kjartan Ragnarsson í Sjómannagarðinum á Hellissandi:

Viðfangsefnin virðast mörg

Við að græða sárin.

Leggjum saman líkn við björg

Leysum vandamálin.