Póstlisti
Prenta

Í gamla Neshreppi er nú blómstrandi atvinnulíf.  Uppistaðan er sjávarútvegur en einnig er nokkur þjónusta.  Landbúnaður er nánast enginn.

Mörg sterk sjávarútvegsfyrirtæki eru nú starfandi og má þar m.a. nefna Hraðfrystihús Hellissands, KG fiskverkun, Sjávariðjuna, Útnes, Skarðsvík og fleiri.

Þjónustustig er nokkuð hátt, m.a. eru tvær matvöruverslanir, þ.e. Virkið á Rifi og Hraðbúð Esso á Hellissandi, einnig er bókabúðin Gimli, byggingavöruverslunin Virkið á Rifi. Þá má nefna bifreiðaverkstæði Ægis, Snyrtistofu Önnu, Hárgreiðslustofu Gunnhildar, Bátahöllina, Vélsmiðju Árna Jóns, Fiskmarkað og margt fleira.

Útibú er frá Landsbanka Íslands og jafnframt er Íslandspóstur með starfsstöð.

Bæjarskrifstofur Snæfellsbæjar eru staðsettar í Félagsheimilinu Röst á Hellissandi.