Póstlisti
Prenta

Fréttir

Sandaragleðin um helgina.

07.07.2010

Sandara og Rifsaragleðin hefst með sjóstanveiðimóti föstudaginn 9. júlí. Að vanda verður margt um að vera alla helgina.

Seinni undankeppnin í karíóki

03.02.2009

Í haust og vetur hefur Umf. Reynir staðið fyrir karaokekeppni meðal fyrirtækja í Snæfellsbæ. 32 lið hófu keppni og nú standa 10 lið eftir í undanúrslitum sem fara fram næstkomandi föstudag, 6. feb.

Félagsmiðstöðinni Afdrep færð gjöf.

23.01.2009

Í síðustu viku komu konur úr lionsklúbbnum Þernunni á Hellissandi og Rán í Ólafsvík færandi hendi þegar þær gáfu félagsmiðstöðinni Afdrep sófasett. Unglingarnir voru í skýjunum með þessa góðu gjöf og njóta þess að hreiðra um sig í þessu nýja setti og spjalla saman eða horfa á góða mynd.

Lífsbjörg fær fjórhjól að gjöf. - snb.is

23.01.2009

Um síðustu helgi var björgunarsveitinni Lífsbjörg afhent öflugt fjórhjól að gjöf, gefendur eru hjónin Óttar Sveinbjörnsson og Guðlaug Íris Tryggvadóttir. Fjórhjólið sem er af gerðinni Yamaha Grizzly er gefið í tilefni af 40 ára verslunarafmæli þeirra hjóna og einnig í tilefni af því að liðin eru 80 ár frá stofnun björgunarsveitarinnar Bjargar á Hellissandi.

Alda Dís í úrslit í söngvakeppni Samfés -snb.is

19.01.2009

Um miðjan janúar var Vesturlandskeppni söngvakeppninnar Samfés haldin í Grundaskóla á Akranesi. Alda Dís Arnardóttir (dóttir Össa og Sirrýar) og Birgitta Baldursdóttir (dóttir Balda og Betu í Rifi) sungu fyrir hönd félagsmiðstöðvarinnar Afdreps og komst Alda Dís áfram í úrslit með lagið "You light up my life" ásamt Ingu Maríu Hjartardóttir sem söng fyrir hönd Arnadals á Akranesi.

Ádís Arnardóttir með myndlistarsýningu

15.10.2008

Ásdís Arnadóttir sýnir vatnslitaverk í húsakynnum SÍM, Hafnarstræti 16. Verk hennar standa út mánuðinn, en opið er frá kl. 10-16 alla virka daga. Ásdís Arnardóttir SÍMari október mánaðar Ásdís útskrifaðist úr málunardeild Myndlista- og Handíðaskóla Íslands árið 1999. Að auki nam hún við Myndlistarskólann á Akureyri og við Accademia di Bella Arti í Bologna á Ítalíu. Hún hefur haldið einkasýningar og samsýningar á Íslandi og Litháen.

Sandari fer með stórt hlutverk í eistneskri kvikmynd

20.07.2008

Kári Viðarsson leikur í nýrri mynd Dirks Hoyer. “Ég var í leiklistarskóla í Eistlandi sem skiptinemi. Þá kom þýskur leikstjóri, Dirk Hoyer, að horfa á okkur á æfingu. Í framhaldinu bað hann mig um að vera með í þessari kvikmynd,” segir Kári Viðarsson leiklistarnemi og borinn og barnfæddur Sandari sem mun halda til Eistlands í ágúst. Þar mun hann leika eitt fjögurra aðalhlutverka í kvikmynd Dirks sem fjallar um samskipti fjögurra aðila. “Þetta verður mjög góð reynsla fyrir mig og ég hlakka mikið til að takast á við þessa áskorun. Þetta er í fyrsta skipti sem ég leik í kvikmynd og fyrsta stóra verkefnið, þótt ég hafi nú búið til mínar eigin stuttmyndir,” segir Kári og hlær. “Ég leik mann, útlending í Eistlandi, sem er í sambandi við stelpu sem er eistnesk. Það má segja að myndin fjalli í hnotskurn um tvö sambönd og samskipti þeirra aðila sem í þeim eru.” Nánar er rætt við Kára í nýjasta tölublaði Skessuhorns. Fréttin er tekin af vefnum skessuhorn.is

Jón Einarsson sigraði á Akranesi.

17.06.2008

Jón Einarsson aflakló frá Rifi hefur heldur betur verið að gera það gott á sjóstangveiðimótum undanfarið. Jón sigraði nýverið stangveiðimót á Akranesi þar sem hann fékk 371,94 kíló. Jón tapaði naumlega sigrinum á móti sem haldið var á Patreksfirði en þar drógu stangveiðimenn að landi hreint ótrúlegan afla og sett voru bæði Íslandsmet og heimsmet.

Sjá allar Fréttir