Póstlisti
Prenta

Sandari fer með stórt hlutverk í eistneskri kvikmynd

Kári Viðarsson leikur í nýrri mynd Dirks Hoyer. “Ég var í leiklistarskóla í Eistlandi sem skiptinemi. Þá kom þýskur leikstjóri, Dirk Hoyer, að horfa á okkur á æfingu. Í framhaldinu bað hann mig um að vera með í þessari kvikmynd,” segir Kári Viðarsson leiklistarnemi og borinn og barnfæddur Sandari sem mun halda til Eistlands í ágúst. Þar mun hann leika eitt fjögurra aðalhlutverka í kvikmynd Dirks sem fjallar um samskipti fjögurra aðila. “Þetta verður mjög góð reynsla fyrir mig og ég hlakka mikið til að takast á við þessa áskorun. Þetta er í fyrsta skipti sem ég leik í kvikmynd og fyrsta stóra verkefnið, þótt ég hafi nú búið til mínar eigin stuttmyndir,” segir Kári og hlær. “Ég leik mann, útlending í Eistlandi, sem er í sambandi við stelpu sem er eistnesk. Það má segja að myndin fjalli í hnotskurn um tvö sambönd og samskipti þeirra aðila sem í þeim eru.” Nánar er rætt við Kára í nýjasta tölublaði Skessuhorns. Fréttin er tekin af vefnum skessuhorn.is

 

Til baka