Póstlisti
Prenta

Ádís Arnardóttir með myndlistarsýningu

Ásdís Arnadóttir sýnir vatnslitaverk í húsakynnum SÍM, Hafnarstræti 16. Verk hennar standa út mánuðinn, en opið er frá kl. 10-16 alla virka daga. Ásdís Arnardóttir SÍMari október mánaðar Ásdís útskrifaðist úr málunardeild Myndlista- og Handíðaskóla Íslands árið 1999. Að auki nam hún við Myndlistarskólann á Akureyri og við Accademia di Bella Arti í Bologna á Ítalíu. Hún hefur haldið einkasýningar og samsýningar á Íslandi og Litháen.

 
 
Vatnslitaverkin eru unnin á hríspappír og er myndefnið sótt í ljósmyndir teknar á árunum í kringum 1975 um það leyti sem Kodak Instamatic myndavélar voru algeng eign á heimilum landsins.
 
Ásdís hlaut nýverið viðurkenningu Samtaka listamanna í Litháen fyrir verk á tvíæringnum Baltic Bridges í Kaunas í Litháen en þessi verk sýnir hún í SÍM húsinu.
 
Nánar um Ásdísi Arnardóttur:
http://umm.is/UMMIS/Listamenn/Listamadur/655

 
SÍMari mánaðarins er valinn af handahófi af síðunni umm.is.

 
Þeir listamenn sem hafa verið SÍMarar það sem af er ári eru:
 
Ásdís Sif Gunnarsdóttir             í febrúar
Guðjón B. Ketilsson                 í mars
Ásta Ólafsdóttir                        í apríl
Unnur Mjöll S. Leifsdóttir          í maí
Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir í júní
Kristbergur Ó. Pétursson          í júlí
J.B.K. Ransu                            í ágúst
Margrét Jónsdóttir                    í september

Til baka