Leturstærð

Hér verða birtar frásagnir af fólki sem hefur búið í Neshreppi utan Ennis. Mörgum finnst að þeir hafi lítið fram að færa og hafi frá litlu að segja. Þetta er allsendis rangt. Saga hvers einstaklings myndar sögu hreppsins okkar.
Ef þið hafið eitthvað fram að færa um ykkur eða skyldmenni ykkar eða getið gefið vísbeningar um góðar greinar sem vert er að birta, þá vinsamlegast sendið mér ábendingu á haukurmar@simnet.is .
Eðlilega verður að skoða í hverju tilviki fyrir sig hvað er birtingarhæft því hér er ekki meiningin að vera með meiðandi upplýsingar eða umsagnir um núlifendur eða dána.
Ef viðkomandi grein hefur birst opinberlega annarsstaðar verður að geta heimilda, s.s. í hvaða bók eða riti viðkomandi grein hefur birst.
Ritstjóri áskilur sér þó rétt til að nota beinar tilvitnanir í afmælisgreinar, minningargreinar og aðrar frásagnir um ættir og ævistörf þeirra einstaklinga sem fjallað eru um á síðunni.