Leturstærð

Viðamikið verkefni er að skrá sögu allra húsa í Neshreppi utan Ennis og kannski algjörlega ógerlegt svo vel sé. Hér verður leitast við að birta myndir af öllum húsum sem eru uppistandandi í gamla Neshreppi utan Ennis sem og þeim húsum sem horfin eru af sjónarsviðinu og til eru myndir af. Reynt verður af fremsta megni að segja stuttlega sögu þeirra, þ.e. hvenær þau voru byggð og hverjir hafa búið þar á seinni árum.
Allar upplýsingar eru vel þegnar. Í hvaða húsi bjóst þú og hverjir bjuggu þar á undan þér og á eftir. Gaman væri að fá slíkar upplýsingar sem og gamlar myndir af húsinu og fjölskyldu þinni. Póstfangið er haukurmar@simnet.is
Ath með því að smella á myndirnar sem eru í albúmunum er hægt að stækka viðkomandi mynd og þá koma einnig fram frekari upplýsingar um viðkomandi hús, s.s. eins og stærð þess, byggingarár og saga þess hafi hún verið skráð. Þessi liður er reyndar enn í vinnslu svo þetta á alls ekki við nema hluta húsanna.