Húsin á Rifi
Flest allar myndir af húsunum tók Haukur Már Sigurðarson eina septemberhelgi árið 2007. Eldri myndir af uppistandandi húsum og húsum sem hafa verið rifin eru fengnar að láni annarsstaðar frá og ber að þakka þeim sem hafa lánað myndirnar sýnar.
Markmiðið er að taka myndir af húsunum í gamla Neshreppi á 10 ára fresti og fylgjast þannig með þróun byggðar. Einnig er markmiðið að skrá eigendasögu húsanna jöfnum höndum og eigendaskipti verða og eru lesendur vefjarins beðnir að vera duglegir við að senda inn ábendingar um eigendaskipti, þannig verður hægt að viðhalda sögunni.
Allar ábendingar um sögu húsanna í fortíð og framtíð er hægt að senda á netfangið hellissandur@hellissandur.is.
ATHUGIÐ AÐ EF SMELLT ER Á MYND AF VIÐKOMANDI HÚSI, EÐA Á T.D. FREMSTU MYNDINA Í HVERJU ALBÚMI ÞÁ STÆKKAR MYNDIN OG UNDIR HENNI MÁ SJÁ FREKARI UPPLÝSINGAR UM HVERT HÚS, S.S. STÆRÐ ÞESS, BYGGINGARÁR OG SÖGU ÞESS HAFI HÚN VERIÐ SKRÁÐ, SÁ ÞÁTTUR ER ENN Í VINNSLU. EINNIG ER HÆGT AÐ FLETTA MILLI MYNDA HAFI MYNDIN VERIÐ STÆKKUÐ MEÐ ÞESSUM HÆTTI.