Leturstærð

![]()
![]()
Ester ólst upp í stórum systkinahópi í Fáskrúð á Hellissandi. Systkini hennar voru: Hallbjörn og Kristján Guðmundur er létust báðir í frumbernsku. Níu systkini komust á legg: Hallfríður ,látin. Kristmundur ,látinn. Ólafur Oddgeir, Gestur Bergmann látinn. Sýrus Guðvin og Hrefna . Sammæðra voru Hlöðver og Guðrún Einara Þórðarbörn bæði látin.
Ester giftist eftirlifandi eiginmanni sínum Alexander Alexanderssyni f: 28.03.1930, 18 september 1954 og eignuðust þau þrjár dætur.
1. Hjördís f: 12.12.1954, gift Guðmundi Jóni Jónssyni börn þeirra: a.) Alexander, dætur hans: Hjördís, Þórhildur, og Sædís. b.) Björg.
2. Bára f: 16.07.1958, gift Þórarni Hjálmarssyni börn þeirra: a.) Halla b.) Bjarki c.) Trausti.
3. Erla f: 10.09.1961, gift Sigurði Jóni Ragnarssyni, börn þeirra: a.) Ragnar , b.) Birgir c. ) Ester .
Ester bjó lengst af í Holtagerði 62 í Kópavogi og síðustu 10 árin í Melalind 8 Kópavogi. Ester gekk í húsmæðraskólann á Löngumýri veturinn 1949-50 og minntist þess tíma með miklum hlýhug. Hún var mikil félagskona og söngelsk. Söng í nokkrum kórum og var ein af stofnendum Samkórs Kópavogs 1966. Sat í Íþrótta- og tómstundaráði Kópavogs um árabil fyrir Samkórinn. Hún söng lengi með Snæfellingakórnum og Kór eldriborgara í Kópavogi. Ester sat í stjórn Sandarafélsgsins í Reykjavík til margra ára. Hún starfaði í hart nær 30 ár í niðursuðuverksmiðjunni Ora, sem matráðskona og sat í stjórn Verkakvennafélagsins Framsóknar í nokkur ár.
Ester og Alexander voru ein af frumbyggjum sumarbústaðahverfisins í Eilífsdal í Kjós, þar sem 4 bræðrum hennar og mágkonur, dóttir, og venslafólk byggðu sér bústaði. Ester var ein af stofnfélögum Rebekkustúkunnar nr. 8 Rannveigar í Oddfellow reglunni í Hafnarfirði 1983 og var virkur félagi með stúkunni á meðan heilsan leyfði.
Ester dvaldi á Vífilsstöðum síðustu mánuði ævi sinnar og naut þar frábærrar ummönnunnar og lést þar 16. mars síðastliðinn . Útför hennar fór fram frá Fossvogskirkju.