Leturstærð

hellissandur.is er í eigu og á ábyrgð Hauks Más Sigurðarsonar sem m.a. bjó á Görðum á Hellissandi. Haukur flutti til Hellissands með foreldrum sínum frá Skagaströnd á haustdögum árið 1967. Settist að í Gamla-Rifi, þar sem húsnæði það sem foreldrar hans keyptu þ.e. húsið Garðar á Hellissandi, var ekki laust til afnota þegar til átti að taka. Nokkrum mánuðum síðar var loks flutt á Garðana. Seinna byggðu foreldrar Hauks, þau Guðbjörg Lárusdóttir og Sigurður Árnason hús að Munaðarhóli 6 og seldu Garðana.
Haukur starfaði bæði til sjós og lands á meðan hann bjó á Hellissandi, var m.a. annars útibússtjóri Kaupfélags Borgfirðinga á Hellissandi, starfsmaður Vlf. Aftureldingar og stjórnarmaður.
Haukur býr núna ásamt konu sinni Gunnhildi A. Þórisdóttur og tveimur dætrum, þeim Unu Lind sem starfar hjá Hreyfingu í Reykjavík og Elvu Mjöll sem er í Menntaskólanum að Laugarvatni, á Patreksfirði, þangað sem hann flutti árið 1994.
Tilurð þessa vefs er einlægur áhugi á að halda saman upplýsingum um Neshrepp utan Ennis, lífið þar og störf fólks allt fram á þennan dag. Þó að hreppurinn tilheyri nú nýju sveitarfélagi þ.e. Snæfellsbæ, þá heldur sagan áfram að gerast innan landamerkja gamla Neshrepps. Þá sögu ber að varðveita.
Öllum þeim sem vilja fá efni birt á vefnum, er það velkomið. Ef þið eigið eitthvað í fórum ykkar, eins og upplýsingar um hús, báta, ættmenni, góðar sögur frá fyrri tíð hvort heldur gamanmál eða fróðleik, þá mun ég móttaka það fegins hendi og birta á vefnum. Gamlar myndir sem og myndir úr nútímanum eru gersemar sem ber að varðveita, eigið þið eitthvað slíkt þá er það vel þegið.
Allar ábendingar um villur sem á vefnum kunna að vera væri gott að fá jöfnum höndum og þið verðið var þær. Ég biðst forláts ef á einhvern hátt er rangt farið með þær heimildir sem ég hef viðað að mér og er fús til að leiðrétta þær um leið og ábendingar berast.
Netfangið er haukurmar@simnet.is og síminn er 456-1580 heima og vinnusími 456-1545. Best er að senda á tölvupóstinn þar sem erfitt getur verið á ná í mig í vinnunni vegna anna.
Ég vil þakka eftirtöldum aðilum fyrir framlag þeirra til vefjarins:
Pálma Almarssyni fyrir aðstoð við uppsetningu vefjarins og hagstæða samninga við Hugsandi menn um notkun á vefkerfi þeirra og hýsingu. Einnig fyrir að taka að sér ritstjórn síðunnar um Kristinn Kristjánsson og skrif um hljómsveitir frá Hellissandi. Pálmi er jafnframt annar af aðalritstjórum vefjarins og hefur verð stoð og stytta við útvegun efnis, m.a. um hljómsveitir og fleira.
Guðlaugur Albertsson, Alfons Finnsson, Gunnar Ó. Sigmarsson og Kristinn Ásbjörnsson sem hafa heimilað notkun ljósmynda sinna á vefnum.
Útgáfufélaginu Árvakri fyrir heimild til að nota allar heimildir úr Morgunblaðinu.
Skúla Alexanderssyni fyrir ábendingar um efni og höfðinglega bókagjöf sem hefur hjálpað heilmikið í heimildarleit fyrir efni á vefinn.